10 bestu / Guðrún Veturliðadóttir, tónlistarkona og tæknimaður S4 E6

Ásgeir Ólafs - Podcast - A podcast by Podcast Stúdíó Akureyrar

Categories:

Guðrún Veturliðadóttir ólst upp fyrir vestan og austan land. Hún flutti til Dublin og er að nema þar tónlistarupptöku og tæknistjórn en Covid sendi hana heim í fjarnám. (Music production).  Hún starfar fyrir Menningarfélag Akureyrar (MAK) og hefur tæknað nokkur stór verk fyrir SinfoniaNord sem er orðin heimsþekkt fyrir Hollywood upptökur á hinum ýmsu kvikmyndum.  Það er eitthvað spennandi á leiðinni í loftið frá henni en það var sama hvað ég gekk á hana, þá mátti lítið gefa upp. Mögulega getur þú gruflað það upp.  Guðrún fékk örlagaríkt símtal frá pabba sínum sem breytti stefnu hennar þegar hún hafði ráðið sig í vinnu á tjaldsvæði á Seyðisfirði. Eftir það símtal er hún í raun að elta drauminn. "Bara meiri músík" svarar hún ítrekað þegar hún fær spurninguna hvað sé framundan. Hún lifir og hrærist í tónlist og vinnur líka rauðu dagana. Tekur sér lítið frí.  Þessi unga kona á eftir að ná langt. Mundu bara nafnið.  Guðrún Veturliðadóttir.