#231 DC: Gods and Monsters með Gumma Sósu

Bíóblaður - A podcast by Hafsteinn Sæmundsson

Categories:

Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða núverandi stöðu DC og hversu björt framtíðin er eftir að James Gunn og Peter Safran tóku við DC studios.   Gummi og Hafsteinn ræða þessi 10 verkefni sem Gunn tilkynnti á dögunum en þar á meðal er ný Superman mynd, HBO sería um Green Lanterns, ný Supergirl mynd, kvikmynd um ofurhetjuteymið The Authority og HBO sería um Amanda Waller.   Strákarnir ræða einnig hvort DC menn munu reyna að brjótast út úr Marvel boxinu með því að taka fleiri sénsa og leyfa sumum myndum að vera t.d. R-rated.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.