#234 Movie Masters: Kilo og Snorri vs. Óli og Máni

Bíóblaður - A podcast by Hafsteinn Sæmundsson

Categories:

Það er komið að stærstu spurningakeppni ársins!   Kilo og Snorri hafa keppt tvisvar sinnum á móti hvor öðrum en núna eru þeir saman í liði á móti Óla og Mána. Kilo og Snorri voru ótrúlega jafnir þegar þeir kepptu og nú verður gaman að sjá hversu gott lið þeir mynda. Óli og Máni hafa keppt einu sinni áður í spurningakeppni en þá kepptu þeir við Ara og Ragga. Óli og Máni rústuðu þeirri keppni og því verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur á móti Kilo og Snorra.   Í þættinum eru alls konar spurningar en Hafsteinn samdi allar spurningar út frá fimm grunnflokkum. Flokkarnir eru 90’s hasar, 10’s Sci-Fi, Disney og ofurhetjur. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem hafa áhuga á kvikmyndum og spurningakeppnum.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.