Sprengisandur 13.07.2025 - Viðtöl þáttarins
Bylgjan - A podcast by Bylgjan

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætt: HeilbrigðismálAlma Möller, heilbrigðisráðherra, Ráðherra mun bregðast við nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítala fyrsta sinni - skýrslan gerir glögga grein fyrir mönnunarvanda og álagi á spítalanum sem síðan smitar út í allt kerfið. Hvernig er hægt að bregðast við því sem þar er lýst? StjórnmálHaukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur Haukur ræðir ástandið á þinginu, kjarnorkuákvæðið og beitingu þess, málþóf og stöðu þingsins eftir þessa hörðu hríð að undanförnu. StjórnmálKristrún Frostadóttir forsætisráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins Forystukonur ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu takast á um stjórnmál dagsins og þá einkum veiðgjöldin og afgreiðslu þingsins á því máli. AlþjóðamálHilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA Hilmar ræðir stöðuna í Úkraínu. Stríð hefur nú geisað í 40 mánuði og hægt og bítandi er Rússland að bæta stöðu sína - er fall Úkraínu orðið óumflýjanlegt, ef ekki, hvað þarf til að snúa stöðunni við?