Sprengisandur 20.07.2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan - A podcast by Bylgjan

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: StjórnmálÞórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis  Þórunn ræðir þinglokin þar sem mikið mæddi á henni, ákvörðun um að ljúka viðræðum um veiðigjaldafrumvarp og stöðu sína sem forseti þingsins, nú þegar minnihlutinn hefur lýst yfir tortryggni í hennar garð og jafnvel vantrausti.  Efnahagsmál Agnar Tómas Möller, sérfræðingur á fjármálamarkaði  Agnar ræðir efnahagsmál og bendir á þá staðreynd að bæði langtíma- og skammtímavextir á skuldabréfamarkaði bendi til þess að hvorki verðbólga né almennir vextir muni lækka á næstunni. Hann gagnrýnir ómarkvissa fjármögnun ríkissjóðs sem hann segir vinna gegn lækkun vaxta og verðbólgu.  StjórnmálSigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Sigmundur gagnrýnir ríkisstjórnina vegna heimsóknar Ulriku Von Leyen nýverið og boðar harða andstöðu við hverskyns áform um frekari nálgun við ESB.  Sjávarútvegur/strandveiðar Sigurjón Þórðarson, formaður Atvinnuveganefndar Alþingis og Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssamband.Þeir rökræða þá stöðu sem upp er komin í strandveiðum. Lofað hafði verið veiðidögum í júlí og ágúst en ljóst að það loforð verður ekki efnt og að veiðunum er lokið. Mikil vonbrigði segja smábátasjómenn.