Sprengisandur 29.06.2029 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan - A podcast by Bylgjan

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: TrúmálSigríður Guðmarsdóttir, prófessor í Hagnýtri guðfræðiSigríður ræðir nýja handbók kirkjunnar, breytingar á tungutaki í henni, sálma á erlendum tungumálum í sálmabókum kirkjunnar og átök um eignarhald á kristninni hérlendis og víðar um heim.  AlþjóðmálSvandís Svavarsdóttir formaður VG,Dagur B. Eggertsson alþingismaður Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingurÞau ræða sögulegan fund Nató í Haag í síðustu viku þar sem samþykkt var gríðarleg útgjaldaaukning til hernaðaruppbyggingar í Nató-löndunum, þ.m.t. allri Evrópu.  EfnahagsmálHalla Gunnarsdóttir formaður VR  Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA Halla og Sigríður ræða nýjar verðbólgutölur og áhrif þeirra - áfall segir Halla fyrir langtíma kjarasamninga, fyrirtæki verði að halda að sér höndunum um hækkun vöruverðs og ljóst þykir að vaxtalækkanir verða engar á meðan staðan er þessi.  FerðaþjónustaPétur Óskarsson formaður SAF Pétur ræðir það sem hann kallar kaldar kveðjur forsætisráðherra til ferðaþjónustunnar. SAF stjórnin er ósátt við forsætisráðherrann og segir neikvæðni hennar í garð vaxtar í ferðaþjónustu valda miklum áhyggjum.