Leirfinnur á Hrekkjavöku

Þetta helst - A podcast by RÚV

Podcast artwork

Categories:

Á Hrekkjavöku verður myndlistarverk eftir Ólöfu Nordal til sýnis í gamla sóttvarnarhúsinu við Ánanaust í Reykjavík. Verkið er hennar útgáfa af Leirfinni, einum umdeildasta skúlptúr Íslandssögunnar. Verk Ólafar á sér langa og forvitnilega sögu sem teygir sig anga sína á Kristnihátið á Þingvöllum, til Ríkislögreglustjóra og ofan í lítinn skókassa. Ólöf segir okkur frá fyrirhöfninni við að skapa verkið og deilum við höfund hins eiginlega Leirfinns. Umsjón: Þóra Tómasdóttir