Rannsóknaraldur, öskudagur og afreksíþróttir

Ungbarnasundið var á sínum stað þessa vikuna og Adeline Brynja full af orku þegar þátturinn var tekinn upp. Hún er nú orðin 6 mánaða og komin á svokallaðan rannsóknaraldur; hún skoðar allt og fylgist gaumgæfilega með umhverfinu. Rannsóknir umhverfisins fara að miklu leiti í gegnum munninn á þessu stigi og svo er ótrúlega spennandi að láta hluti detta!Öskudagurinn er auðvitað nýafstaðinn og búningar alls ekki jafn misjafnir og þeir eru margir. En mörg börn kjósa sér búninga eftir þeirra helstu áhugaefnum og þá er spurningin: geta þeir sært eða smánað? Afreksíþróttir og íþróttamennska kom líka til tals og þeirra áhrif.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]ðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]

Om Podcasten

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.