Stolt "brottfall", basl og betrun

Fjölskyldan ehf. - A podcast by Margrét Pála og Móey Pála

Categories:

Þáttur vikunnar er tileinkaður Agnari sem er barnabarn númer tvö í Fjölskyldunni ehf. Hann fann sig ekki í framhaldsskóla en vissi ekki hvað hann vildi gera. Áfengi og gras voru freistingar sem hann féll fyrir um tíma en hvað gerði fullorðna fólkið til að styðja unga manninn? Hvað er í boði ef framhaldsskólinn virkar ekki? Hvernig er að eiga eldri systur sem er með allt à hreinu? Er samanburður í fjölskyldunni verri eða betri en samanburðurinn við jafnaldrana? Agnar ræðir einnig hvað hann gerir í dag og hvernig það kom til að hann nýtur þess nú að vera í námi.Heiðarleiki og hjartahlýja eru í fyrirrúmi í þættinum sem allar fjölskyldur geta tengt við.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]ðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]