28 – Plebbalegur matarsmekkur Norðlendings

Flimtan og fáryrði - A podcast by Gunnlaugur Bjarnason and Ármann Jakobsson

Categories:

Á að bera fram d í nafninu Halli? Er Ármann hörgabrjótur? Hversu lengi þurfa menn að burðast með syndir fortíðarinnar og hversu fákænn þarf maður að vera til að hengja sjálfan sig? Gunnlaugur og Ármann fjalla um einn af áhugaverðustu Íslendingaþáttunum í Morkinskinnu sem Gunnlaugi finnst þó ekki fyndinn (fyrr en Ármann hermir eftir Maggie Smith).