#100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson
Flugvarpið - A podcast by Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid faraldurs í ársbyrjun 2020 og þegar Flugvarpið hóf göngu sína í október það ár var Jón Þór fyrsti gesturinn. Það var því viðeigandi að bjóða honum aftur í spjall núna rúmlega fjórum árum síðar og fara aðeins yfir málin.