Handkastið - Er krísa hjá Val? Styttist í titil hjá Selfyssingum og hvaða lið fellur með Gróttu?

Handkastið - A podcast by Handkastið

18. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum að þessu sinni. Við fengum lögfræðinginn Jóhann Skúla Jónsson í þáttinn og fengum við hann til að greina umferðina í þaula. Aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildinni og því eru línurnar að fara skýrast. Hvaða lið verður Deildarmeistari? Hvaða lið falla? Hvað er að gerast á Hlíðarenda? Eyjamenn á fljúgandi siglingu og fyrsti sigur Geirs Sveins. Handkastið er í boði BK Kjúklings.