Handkastið - Patti Jó um litríkan feril, skrautlegar sögur og hæðir og lægðir með landsliðinu

Handkastið - A podcast by Handkastið

Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinu var Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins. Rætt var um athyglisverðan feril Patreks sem hófst í Garðabænum, stutt viðkoma í Hafnarfirðinum áður en hann flutti til Akureyrar þar sem ferilinn fór almennilega á flug. Patti á að baki 241 landsleik og lék í fjölda ára í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni með mörgum af bestu handboltamönnum í heimi. - Skapstór og hvatvísi á uppvaxtarárunum - Árin á Íslandi fyrir atvinnumennsku - Góð sjö ár í TUSEM Essen þar sem hann faldi sig í skógi í útihlaupi - Stutt dvöl hjá Bidasoa - Meiðslahrjáð tímabil í Minden - Heimkoman í Garðabæinn - Þjálfaraferilinn hófst í Stjörnunni - Tímarnir með landsliðinu - Vonbrigðin á HM ´95 á Íslandi - Frábær mót á HM ´97 og EM ´02 - Hversu langt ná Haukur Þrastar og Elvar Örn? - Hver er besti leikmaður sem Patti hefur spilað með á ferlinum? - Hvernig markmaður var Styrmir Sigurðsson?