Handkastið - Selfoss vinnur deildina og Grótta fellur

Handkastið - A podcast by Handkastið

Í þessum þætti var farið yfir fimm leiki í 17. umferð Olís-deildar karla en leik ÍBV og Akureyrar var tvívegis frestað. Gestur þáttarins var góðvinur þáttarins, íþróttafréttamaðurinn Benedikt Grétarsson. Í þættinum fórum við einnig yfir stöðuna í deildinni og er Sérfræðingurinn fullviss um að Selfoss verði Deildarmeistarar og Grótta falli. Handkastið er í boði Coolbet og BK Kjúklings og í samstarfi við Áttan FM.