Handkastið - Taka 2 - Grænlenski tæknimaðurinn í heimsókn - Sorry Gunni Magg!

Handkastið - A podcast by Handkastið

Það var bras á Sérfræðingnum og Stymma í yfirferð sinni um 4. umferðina í Olís-deildinni. Grænlenski tæknimaðurinn kom og truflaði þá heldur betur og þurftu því aðra töku til að græja þáttinn. Við biðjum Gunna Magg. þjálfara Hauka afsökunar á því en við lofum að hringja í hann síðar í vetur og læsum grænlenska tæknimanninn inní kompu á meðan. Coolbet leikmaður 4. umferðarinnar var valinn og farið yfir 5. umferðina. Allt í boði BK Kjúklings.