16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - Guðrún Stefánsdóttir
Hlaðvarp Lyfjastofnunar - A podcast by Lyfjastofnun

Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofnunarinnar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. - Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir