17. Bóluefni gegn COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbeinn Guðmundsson

Hlaðvarp Lyfjastofnunar - A podcast by Lyfjastofnun

Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnunar, og Kolbein Guðmundsson yfirlækni stofnunarinnar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir