#25 Helgi í Góu - Nammigrís

Í þessum 25. þætti af Kokkaflakki í eyrun fer ég í heimsókn til goðsagnar á Íslandi, en það er enginn annar en Helgi Vilhjálmsson sem alltaf er kenndur við Góu. Mig hefur lengi langað að tala við hann og náði loksins að manna mig upp í það og afrakstur þess er hér fyrir þig.    Við ræddum heima og geima, upphafið á Góu, fyrstu karamelluvélina og hvernig Hraun er mögulega fyrirmynd af öðrum alþjólegum súkkulaðistykkjum. Við töluðum líka um upphafið á KFC, kjúklingamenningu á Íslandi og svo auðvitað aðeins um húsnæðismál, lífeyrissjóði og önnur hitamál sem brunnu á Helga. Gott spjall!

Om Podcasten

Ólafur Örn spjallar við fólk sem er eitthvað að fást við mat eða drykk, eða hefur mikinn áhuga á mat eða drykk.