0. KYNNING – Alma Dóra – Konur í nýsköpun

Konur í nýsköpun - A podcast by Alma Dóra Ríkarðsdóttir

Categories:

Sumarið 2020 fékk Alma Dóra Ríkarðsdóttir (að eigin sögn) besta sumarstarf sem nokkur viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði gæti óskað sér. Á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna rannsakaði hún stöðu og valdeflingu kvenna til nýsköpunar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ásamt því að uppfæra kynjuðu tölfræðina hjá nýsköpunarsjóðum ráðuneytisins tók hún viðtöl við áhrifakonur úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Í þessu hlaðvarpi verður hægt að hlusta á þessi viðtöl og fræðast um hvað er að gerast í nýsköpun á Íslandi með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi. Þetta eru konur í nýsköpun.