Piss, kúkur, klósettpappír og allt hitt

Lífæðar landsins - A podcast by Lífæðar landsins

Fráveitan er mikilvægt heilbrigðis- og hreinlætismál. Hún flytur frárennsli og skólp heimila og fyrirtækja, og regnvatn frá götum og lóðum í sjó með viðkomu í hreinsistöð. Það er mörg horn að líta, til dæmis að bregðast við þéttingu byggðar og hvar fráveitan á að vera, loftslagsbreytingar og að fá fólk til að hætta að nota klósettið eins og ruslafötu. Viðmælendur þáttarins eru Fjóla Jóhannesdóttir og Hlöðver Stefán Þorgeirsson, sérfræðingar í fráveitu hjá Veitum og ræða um þessi verkefni sem þau fást við daglega.