Tanja Ýr - Ekki flækja hlutina

Þolinmæði er að vera með gott hugarfar á meðan þú bíður - Tanja Ýr ræðir hvernig hún stofnaði 2 fyrirtæki fyrir 25 ára aldur, er ekki að flækja hlutina á meðan hún fullkomnar vörumerkin sín sem er ferli sem getur tekið rúmt ár eins og fyrir nýjasta vörumerkið hennar Glamista Hair. 

Om Podcasten

Hlaðvarpið er partur af verkefni Öldu Karenar Hjaltalín Lífsbiblían sem endar með útgáfu af bók með sama nafni í Janúar 2021. Hlaðvarpið er framleitt af Jons.isÖll eigum við okkur einhverja Lífsbiblíu. Eitthvað óskrifað rit í huganum sem geymir söguna okkar, upplifanir, gildi og viðhorf til lífsins. En eins og margar biblíur er hægt túlka hana á ótal vegu. Það er hægt að túlka hana á þann hátt að maður dregur sig niður og setur sér ósýnileg takmörk í lífinu. Eða það er hægt að túlka hana á þann hátt að manni finnst allt vera aðgengilegt manni. Spurningin er einfaldlega hvort það sem þú segir sjálfu þér í huganum sé í vaxandi eða staðnandi hugarfari?