Jónsi föstudagsgestur og matarspjall á bóndadegi
Mannlegi þátturinn - A podcast by RÚV

Categories:
Föstudagsgesturinn okkar í dag var söngvarinn góðkunni Jón Jósep Snæbjörnsson eða Jónsi í Svörtum fötum. Hann er fæddur 1.júní 1977 og hefur svo sannarlega komið víða við á tónlistarbrautinni. Í dag starfar hann sem viðskiptatengslastjóri hjá Aurbjörgu auk þess að vera enn á kafi í tónlistarbransanum. Jónsi rifjaði upp æskuárin á Akureyri, upphaf tónlistarferilsins, trommuleik í kjallaranum, skólagönguna, þríhornið, hljómsveitina Ringulreið, flutninginn til Reykjavíkur, ABBA sýninguna á Broadway, þegar hann keppti fyrir hönd Íslands í Istanbúl í Eurovision og fleira. Það var matarspjall í dag eins og alltaf á föstudögum. Á bóndadegi var ekki komist hjá því að ræða bóndamat, þorramat og fleira með Sigurlaugu Margréti og það voru skiptar skoðanir eins og svo oft áður. Tónlist í þætti dagsins: Dag sem dimma nátt / Í svörtum fötum (Magnús Þór Sigmundsson og Stefán Hilmarsson) Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Paradís / Í svörtum fötum (Einar Örn Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR