Smitsjúkdómar fortíðar og framtíðar og ACT meðferðarformið

Mannlegi þátturinn - A podcast by RÚV

Categories:

Við héldum áfram í dag að fjalla um nýafstaðna Læknadaga sem fóru fram í síðustu viku og þar voru mörg áhugaverð erindi flutt sem við reynum að gera einhver skil hér í Mannlega þættinum. Við höfum nú þegar fjallað um endurhæfingu aldraðra og á morgun eru það konur og hormónar en í dag beindum við sjónum okkar að smitsjúkdómum í fortíð, nútíð og framtíð. Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum við H.Í. og formaður félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar kom í þáttinn og fræddi okkur um það. Hjördís Inga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði sem hefur sérhæft sig í einstaklingmeðferð fullorðinna, kom svo í þáttinn. Hún fræddi okkur um ACT meðferðarformið sem telst til þriðju bylgju hugrænnar atferlismeðferðar og miðar að því að auka sálfræðilegan sveigjanleika. Hún sagði okkur frá þessa aðferð og hvernig hægt er að nýta sér hana til að takast á við til dæmis kvíða en hún stendur fyrir námskeiðinu Lifðu í sátt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Tónlist í þættinum í dag: Ég veit að þú kemur / Trúbrot (Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson) One of These Things First / Nick Drake (Nick Drake) Sailing to Philadelphia / Mark Knopfler (Mark Knopfler) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR