Fjármálaherinn

Við förum yfir mál John List, fjölskylduföðurs sem hvarf. Fjölskylda hans fannst myrt í húsi þeirra, og John var horfinn. Allar ljósmyndir af honum voru horfnar, og virtist engin leið til að finna hvar hann var niðurkominn. Við kíkjum einnig aftur í tímann, og spjöllum um brautryðjanda í afbrota- og afbrotasálfræði, hana Pauline Tarnowsky. 

Om Podcasten

Hjónin Svandís og Jóhann fjalla um glæpi, á léttari nótunum. Svandís er með B.Sc í sálfræði og diplóma í afbrota-og réttarsálfr. Jóhann er starfandi læknir með sérstakan áhuga á réttarmeinafræði. Við viljum minna á að efnið þáttanna er ekki fyrir viðkvæma né börn.