Bræðslan er best

Rokkland - A podcast by RÚV

Categories:

...daginn eftir og upphituð - Í Rokklandi dagsins heyrum við brot frá Bræðslunni 2016 sem fór fram í gær á Borgarfirði eystri í 12. sinn í gær. Rás 2 hefur sent út beint frá Bræðslunni allar götur síðan 2006 þegar Emiliana Torrini kom fram á Bræðslunni í annað sinn og dró þá vini sína frá Skotlandi - Belle & Sebastian með sér. Þessi skemmtilega tónlistarhátíð fæddist eiginlega að sjálfu sér þegar Emiliana Torri hélt litla tónleika heima í gömlu sveitinni sinni sem hún dvaldi í hjá ömmu sinni á sumrin þegar hún var krakki. Í dag er Bræðslan einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum ársins og árið í ár er 11 árið þar sem sent er út beint á Rás 2. Þar að auki var sent út í mynd á RUV 2 líka - annað árið í röð. Listamennirnir sem komu fram á Bræðslunni í ár eru þessir og í þessari röð: Soffía Björg David Celia Tina Dickow og Helgi Hrafn Gavin James Amabadama KK Band Nýdönsk Við heyrum brot af öllum tónleikum gærkvöldsins nema Ný Dönsk í Rokklandi dagsins. Þeir tónleikar verða endurteknir í heild sinni síðar (fljótlega). Umsjónarmaður á Bræðslunni var Matthías Már Magnússon og hljóðmaður Haffi Tempó.