Rokkland fylgir þér

Rokkland - A podcast by RÚV

Categories:

okkland er að sjálfsögðu helgað Iceland Airwaves að þessu sinni, en hátíðin fer fram núna um helgina í 16. sinn. Iceland Airwaves fór og fer fram núna um helgina í 16. sinn ? 9.000 manns voru með armband á hátíðina ? miklu fleiri útlendingar en Íslendingar.. Tónleikarnir sem hafa farið fram um helgina víðsvegar um borgina eru næstum 1000 talsins, on og OFF-venue eins og það er kallað. Rás 2 er búin að taka upp næstum 30 hljómsveitir um helgina og við heyrum tóndæmi frá nokkrum þeirra í dag, þeas upptökur frá hátíðinni með: Júníusi Meyvant, Vök, Father John Misty, John Grant og Sinfó, Mána Orrasyni, Axel Flóvent, Agent Fresco: Mercury Rev, Hjaltalín ofl. Við heyrum líka viðtöl við mikið af þessu fólki. Ég ætla líka að minnast eins af frumkvöðlunum í þættinum, en Ásgeir Bragason trommuleikari úr Purrki Pillnikk lést á dögunum aðeins 55 ára gamall.