Kona með reynslu óskast á Bessastaði

Ræðum það... - A podcast by Hlaðvarp Góðra samskipta - Ræðum það

Categories:

Ræðum það snýr aftur á nýju ári eftir fæðingarorlof stjórnandans.  Rætt er um stöðu ríkisstjórnarinnar, deilur um embættisfærslur Svandísar Svavarsdóttur, nýjustu skoðanakannanir, forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum, möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar, endurkomu Samfylkingarinnar frá fyrsta áratugnum, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, tímasetningu alþingiskosninga í ljósi forsetakosninga, forsetaframboð, kröfur til sigurstranglegra frambjóðenda, forsetatíð Guðna, borgarstjóraskipti og hvort Íslendingar séu til í tekjutengdar sektir fyrir umferðarlagabrot. Gestastjórnendur: Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og Kolbeinn Marteinsson, almannatengill hjá Athygli Stjórnandi: Andrés Jónsson Stef: Ræðum það - Dire & Nolem