Dýr, menn og Díegó - Pallborðsumræður, vísindaspjall

Samfélagið - A podcast by RÚV

Categories:

Samfélagið efnir til pallborðsumræðna um dýr og viðhorf mannfólks til þeirra, hver er staða dýra í dag? Hvernig eiga réttindi þeirra eftir að þróast í framtíðinni - Og hvers vegna flykkist fólk um og leggur jafnvel allt í sölurnar fyrir ákveðin dýr - dýr eins og háhyrninginn Keikó eða köttinn Díegó. Þátttakendur: Kristinn Schram þjóðfræðingur sem hefur meðal annars skrifað um samskipti mannskepnunnar og annarra dýra. Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og áhugamanneskja um ketti, lemúra, flóðsvín, pöndur og fleiri dýr. Anna Margrét Áslaugardóttir, dýrahjúkrunarfræðinemi, ráðgjafi hjá Dýrfinnu og í stjórn kattavinafélagsins. Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur og meðlimur í fagráði stjórnvalda um velferð dýra. Í lok þáttar ætlar Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, svo að fjalla um nýjar stofnfrumurannsóknir. Tónlist í þættinum: CURE - The Love Cats. Bubbi Morthens, Eyþór Gunnarsson - Maður og hvalur.