Hönnun hraunvarnargarða, Áhrif Trumps á loftslagið, Ekki í mínum bakgarði
Samfélagið - A podcast by RÚV

Categories:
Við byrjum þáttinn á hönnun Hraunvarnargarða. Síðasta föstudag mættum við á uppskeruhátíð tækni- og tölvufólks á Íslandi, UTmessuna í Hörpu. Þar hittum við Hörn Hrafnsdóttur, sérfræðing í straum- og vatnafræði hjá Verkís og ræddum um hönnun hraunvarnargarða við Svartsengi og Grindavík, og hvernig fagið hraunvarnargarðahönnun hefur þróast á síðustu árum. Halldór Björnsson, fer yfir stöðu og horfur í loftslagsmálum í loftslagsspjallinu - við ræðum sérstaklega áhrif nýs Bandaríkjaforseta Donalds Trumps á framgang loftslagsaðgerða á heimsvísu - en eitt af fyrstu verkum Trumps í embætti var að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur flytur okkur pistil um þéttingu byggðar og það sem fólk vill ekki hafa í bakgarðinum hjá sér. En við byrjum á hraunvarnargörðum á UTmessunni. Tónlist í þættinum: Dean, Olivia, Ezra Collective - No Ones Watching Me. JONI MITCHELL - Big yellow taxi THE BEATLES - There´s a place