Skapandi viðbrögð við umhverfisógnum, básabúðin Venus og listabókstafir
Samfélagið - A podcast by RÚV

Categories:
Hvernig tökumst við á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga, hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika og annarra umhverfisógna. Á dögunum kom út samnorrænt greinasafn sem fjallar um hlutverk lista, bókmennta og skapandi athafna í að bregðast við þessum breytingum. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, er annar ritstjóra safnsins og hún ætlar að kíkja til okkar til að ræða þetta áhugaverða safn, ásamt Önu Stanicevic, doktor í menningarfræðum frá Háskóla Íslands og lektor við Háskólann í Helsinki. Svokallaðar básabúðir þar sem fólk getur leigt bás undir notaðar flíkur skjóta víða upp kollinum þessa dagana. Bræðurnir Hlynur Snær Jóhannesson og Styrmir Jarl Rafnsson opnuðu eina slíka á Selfossi í ársbyrjun, alveg við þjóðveginn í miðju iðnaðarhverfi. Arnhildur hitti Hlyn á ferð Samfélagsins um Suðurlandið í síðustu viku og ræddi við hann um reksturinn og hringrásarhugsunina á bak við hana. Og síðan ætlum við að heyra áður óflutt viðtal við Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við HÍ. Við ræddum við hana í kringum alþingiskosningarnar síðasta nóvember um listabókstafi og ýmislegt fleira sem tengist pólitík. Viðtalið var aldrei flutt vegna óviðráðanlegra aðstæðna, en í lok þáttar fær það loksins að líta dagsins ljós.