Andlegt mein - Ari Auðunn

Skraut Bakkusar - A podcast by Óli Stefán

Categories:

Í dag fæ ég til mín magnaðan ungan dreng. Sjómaðurinn Ari Auðunn Jónsson fer með mér yfir sína sögu og fer það vel í gegnum hana með mér að á tímabili var ég  kominn með honum inn í söguna. Ari er góður sögumaður og kemur inn á margt í sinni sögu sem er ótrúlega auðvelt að tengja við á einn eða annan hátt. Hann fer yfir það með okkur hvernig hann á ungum aldri áttar sig á því að hann er líklega alkóhólisti en hann fer fyrst í meðferð 17 ára gamall. Ferlið í kringum batann, ferlið í kringum fallið, myrkrið og ljósið kemur vel fram í sögunni. Ég er afar þakklátur að hafa fengið Ara  inn í Skraut Bakkusar og ég vona að þið tengið eins vel og ég tengdi við hann. Ari Auðunn Jónsson er einn af oss 🙏Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli 🙏