Leiðin heim - Margrét Erla

Skraut Bakkusar - A podcast by Óli Stefán

Categories:

Í dag fæ ég til mín hana Margréti Erlu sem fer yfir sína reynslusögu með mér. Við förum yfir sögu sem lýsir mjög vel hvernig alkóhólisminn þróast í brothættri ungri stelpu með brotna sjálfsmynd og þá leið sem hún var á þegar hún svo á endanum fann að hún þurfti hjálp. Framundan var erfiður tími að vinna úr lífinu í bata. Hún kemur vel inn á það hversu mikill munur er á batanum þegar hún sleppir vinnunni í kringum hann, eða þegar hún virkilega vinnur og  ræktar batann.Ég sé það oftar og oftar hvert góður bati getur leitt okkur og hvaða möguleikar opnast í lífinu ef maður bara kýs að sjá það. Margrét Erla málar upp svo góða mynd af einmitt því hvernig hennar bati hefur þróast yfir í frábæran stað í lífinu. Margrét Erla lagði fram lag þáttarins sem heitir "Take me home"  með Jess Glynne. Nafn þessa þáttar er leiðin heim sem ég tengi við það sem hún tekur úr þessu lagi. Einning er auðvelt að segja það að þessi magnaða kona hafi fundið leiðina heim á þann stað sem hún er í dag. Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli 🙏