Reyndu aftur - Pálmi

Skraut Bakkusar - A podcast by Óli Stefán

Categories:

Ég fæ góðkunningja þáttarins, hann Pálma Fannar,  í heimsókn að þessu sinni.Þegar ég fæ Pálma með mér horfi ég á það sem "alkaspjall." Tveir alkóhólistar í bata að ræða málin og reyna eftir bestu getu að tala sig í átt að einhverri lausn. Hann kemur með pælingar að borðinu sem við svo ræðum í gegnum eins og við sjáum hlutina, alltaf út frá okkar reynslu.  Það er komið inná mikið í þessum þætti, alveg frá vangaveltum um Guð eða æðri mátt, yfir í uppgjöfina, meðferðina og lífið eftir meðferðina. Mjög gott að hlusta á pælingar Pálma um þessi málefni. Reyndu aftur er nafn þessa þáttar og er það bein tilvísun í lag þáttarins sem Pálmi kom með. Hann segir okkur frá sinni túlkun á laginu og lögum almennt sem hann tengir við alkóhólisma. Góðar stundir 🙏Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli 🙏