Æskudraugar - Kristinn

Skraut Bakkusar - A podcast by Óli Stefán

Categories:

Í dag heyrum við í Kristni Snjólfssyni, 28 ára Blöndósingi. Kristinn á sögu sem er áhrifarík. Hann gerði sér snemma grein fyrir því að hann væri í mikilli áhættu á því að verða alkóhólisti. Hann var ekki nema rétt yfir tvítugt þegar hann ákvað að leita hjálpar. Hann fer yfir það með okkur hvernig einelti í skóla, ógreint ADHD og alkóhólismi inn á heimilinu mótuðu hann. Kristinn fer hér yfir sína sögu af því hvernig hann fer allur í prógramið til þess að halda í hugarró. Kristinn er einn af oss 🙏Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli 🙏