Stjórnleysið sem stjórnaði rútínunni - Halla Vilbergs

Skraut Bakkusar - A podcast by Óli Stefán

Categories:

Gestur minn þessa vikuna heitir Halla Vilbergs. Ég var afskaplega glaður þegar hún Halla samþykkti að setjast niður með mér í Skrautinu því hún hefur verið ótrúlega dugleg og opinská með sína edrúmennsku. Þarna liggur fortíð og kyning hennar við áfengi. Þarna liggur líka þróun á drykkju sem við þekkjum mörg hver ansi vel. Feluleikurinn, óheiðarleikinn og það að skilja ekki hvernig aðrir skilja ekki af hverju maður á svo skilið einn bjór. Einn bjór sem öllu stjórnar öskrar að sjálfsögðu á þann næsta og svo framvegis. Halla er opin og skemmtileg persóna sem gaman er að hlusta á. Hún dregur hér fram í dagsljósið sína sögu til þess að þú tengir kæri hlustandi. Ég mæli svo sannarlega með hlustun. Halla Vilbergs er ein af oss 🙏Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli 🙏